Það er alltaf gaman að heyra sögur af góðverkum mannfólks og dýra, sérstaklega þegar mannfólk og dýr koma saman til að hjálpa öðrum. Það gerðist í gær þegar Gunnar Kr. Sigurjónsson og hundurinn hans Tígull björguðu litlum fugli sem var í vanda staddur.
Gunnar var með opið út á svalir og kom hundurinn hans, Tígull, að ná í hann og vældi þar til hann stóð upp. Tígull dró Gunnar svo út á svalir þar sem lítill fugl sat í hnipri og hreyfði sig ekki. Tígull rak bara aðeins trýnið í hann og var aðallega að sleikja tærnar á honum eftir að hann kom inn.
Eftir að Gunnar tók fuglinn inn fékk hann sér smá korn og vatn og fór aðeins að tísta. Bleikt hafði samband við Gunnar og spurði hvernig fuglinn hefði það.
Það koms í ljós að fuglinn var auðnutittlingur, sem eru af finkuætt. Gunnar setti hann út á svalahandriði í gærkvöldi eftir að hann var búinn að fá sér í gogginn. Klukkutíma síðar var hann á sama stað svo Gunnar hafði hann inni í nótt þar sem fuglinn fékk vatn, fuglakorn og flís af sætri kartöflu.
„Svo sleppti ég honum í hádeginu og þá var hann mun sprækari og flaug stuttu eftir að hann kom út, hátt upp í loftið,“
segir Gunnar.
„Þrátt fyrir að ég sé í hinu íslenska töframannagildi, þá voru þessir töfrar alfarið á hendi Tíguls og auðnutittlingsins.“