Það styttist óðum í tvíbura Beyoncé og Jay Z og heimsbyggðin getur varla beðið. Þetta er önnur meðganga Beyoncé og tekur þessi meðganga meira á heldur en sú fyrri þegar hún gekk með Blue Ivy sem er orðin fimm ára. Heimildarmaður E!News segir að þó að Beyoncé „sé orkuminni þessa meðgöngu,“ þá sé hún ekki að láta það eyðileggja reynsluna.
Hún elskar að vera ófrísk,
segir heimildarmaðurinn. Söngkonan viðheldur heilsusamlegu mataræði en leyfir sér að svindla á því þegar hún vill.
Hún leyfir sér að borða það sem hún vill og hefur ekki tekið þyngdaraukningunni sem neikvæðum hlut. Hún er örugg í sínu skinni sama hvaða stærð hún er og fagnar því,
sagði heimildarmaður E!News.
Beyoncé og Jay Z vita kyn tvíburanna en halda því leyndu í bili. Það hefur þó ekki stoppað aðdáendahópinn að koma með ýmsar getgátur og samsæriskenningar. Eins og þegar hún setti mynd af sér á Instagram í svörtum kjól með silfurlitaða eyrnalokka. Þá kom fram sú kenning að stjörnuparið ætti von á strákum, því Beyoncé var með sömu eyrnalokka í tónlistarmyndbandinu fyrir „If I Was a Boy.“
Hjónaband þeirra er enn á besta stað samkvæmt heimildarmanni E!News.
Ástin [á milli Jay Z og Beyoncé] er ósvikin og alvöru. Jay er góður faðir og eiginmaður. Hann myndi gera hvað sem er fyrir Bey.
Beyoncé átti að koma fram á Coachella í næsta mánuði en þurfti að hætta við. Læknar ráðlögðu henni að slaka á svo hún frestaði framkomunni til 2018.