Reykjavik Fashion Festival hóf nýlega samstarf við Reykjavik Makeup School og NYX Professional Makeup. Eigendur förðunarskólans Reykjavik Makeup School munu hafa umsjón með förðuninni á tískusýningum Reykjavik Fashion Festival 2017. Eigendur skólans, þær Sigurlaug Dröfn Bjarnadóttir og Sara Dögg Johansen munu leiða hóp förðunarfræðinga sem munu farða fyrir tískusýningar RFF með NYX professional makeup vörum.
Þær hafa báðar mikla reynslu í förðunargeiranum, en þær sáu nú síðast um förðun á Ungrfrú Ísland og Miss Universe Iceland keppninni. Þeirra hægri hönd baksviðs verður Helga Karólína Karlsdóttir. Ákveðið var að velja úr hópi hæfileikaríkra útskrifaðra og núverandi nemenda skólans til þess að mynda förðunarteymi fyrir RFF sem fer fram um helgina.
Á dögum héldu þær förðunarkeppni fyrir þar sem öllum nemendum og útskrifuðum förðunarfræðingum skólans var gefið tækifæri á að sýna fram á hæfni í að liðsinna við förðun á stærsta tískuviðburði landsins. Þær leggja mikið uppúr því að nemendur skólans fái jöfn tækifæri til að taka þátt í viðburði sem slíkum. Eigendur vilja á þennan hátt auka áherslu á faglegri upplifun förðunarnema og eins að gefa nemendum þjálfun og reynslu á tískuförðun.
Í keppnina mættu um 50 förðunarfræðingar og fengu þeir úthlutuð þau verkefni að gera tvö förðunar look. Fyrri förðunin var sett upp í svokölluðu moodbordi en keppendur fengu 30 mínútur til að ná fram fallegri förðun með ákveðnum áherslum sem lagt var upp með í byrjun. Innblástur frá NYFW einkenndi seinni farðanirnar en þar fenguu nemendur mynd í hendurnar sem þeir þurftu að endurgera með miklum smáatriðum. Förðunarteymið fyrir Reykjavik Fashion Festival var svo valið útrá frammistöðu keppenda, tímatöku og ýmsum smáatriðum. Það verður ótrúlega gaman að sjá þessa hæfileikaríku förðunarfræðinga skapa flotta förðun á tískupöllum RFF um helgina.