Það getur verið eilíft vesen að vera með hár. Það þarf að ákveða klippingu og lit ef maður vill ekki vera með sinn náttúrulega hárlit. Svo er það hárgreiðslan. Ef maður ætlar ekki að leyfa náttúrunni að hafa völdin og vill stjórna því á einhvern hátt, á þá að slétta hárið, krulla það, henda því í tagl eða snúð? Svo margt í boði og stundum virðist hárið ekki virka í neinni greiðslu þannig maður setur það undir hatt og vonar það besta. Það hafa líklega margir hugsað hvað væri nú þægilegt að raka af sér hárið og þurfa ekki að hugsa um þessa hluti. Það væri örugglega sérstaklega þægilegt yfir sumartímann! Hér eru nokkrar myndir af stjörnum sem rökuðu af sér hárið og gjörsamlega eignuðu sér það útlit með stórglæsileika og töffaraskap. Elle tók saman. Sjáðu myndirnar.