Reykjavík Kabarett hefur heldur betur slegið í gegn með sýningum sínum. Sýningarnar eru fullar af húmor, gleði og losta. Meðal þeirra sem hafa tekið þátt í sýningum Reykjavík Kabarett eru Margrét Erla Maack (ein af 13 kynþokkafyllstu konum landsins um þessar mundir), Ragnheiður Maísól, Þórdís Nadia Semichat ásamt fjöldanum öllum af listamönnum, innlendum og erlendum.
Síðustu sýningar skörtuðu alþjóðlegum listamönnum, þeim M Dame Cuchifrita, Edie Nightcrawler, og the Luminous Pariah. Allt frábær atriði og hreint með ólíkindum að sjá þessa listamenn troða upp á pínulitlum bar í borg með nýfædda burlesque og kabarettsenu. Núna er aftur von á góðum gestum, meðal annars frá hinum goðsagnakennda stað Slipper Room í New York, en Margrét Erla kemur reglulega fram þar. Frá New York koma James Habacker, Camille Habacker, Wilfredo og Sabrina Chap og að auki mætir Sophia Disgrace frá London.
Sýningarnar í apríl verða í Græna herberginu, Lækjargötu, dagana 26., 27. og 28. apríl. Hér getið þið nælt ykkur í miða!