Innbrotsþjófar létu til skarar skríða heima hjá Kendall Jenner og fóru á brott með mikið þýfi að verðmæti um 22 milljónir króna. Heimildarmenn TMZ úr lögreglunni í Los Angeles segja að Kendall hafi farið frá heimili sínu í Hollywood Hills á miðvikudaginn um hádegi og komið til baka í kringum átta um kvöldið.
Hún var heima hjá sér í nokkra klukkutíma áður en hún tók eftir að eitthvað væri að, það var ekki fyrr en hún fór inn í svefnherbergi rétt eftir eitt um nóttina að hún tók eftir að það vantaði hluta af skartgripunum hennar.
Hún hringdi á lögreglu sem var fljót á vettvang. Það voru engin merki um að brotist hafi verið inn um dyr eða glugga, og eins og er er enginn grunaður um að hafa framið verknaðinn.