fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024

Lindex opnar í Reykjanesbæ

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 14. mars 2017 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forráðamenn Lindex á Íslandi hafa ákveðið að opna nýja glæsilega 330 fermetra verslun í Krossmóa, Reykjanesbæ þann 12. ágúst nk. Samningur þess efnis hefur verið undirritaður af hálfu Urtusteins fasteignafélags og forráðamanna Lindex. Lindex er ein stærsta tískufatakeðja Norður Evrópu með um 500 verslanir í 16 löndum. Lindex býður upp á tískufatnað fyrir konur, undirföt, snyrtivörur og fylgihluti sem og fatnað á börn og unglinga á hagkvæmu verði. Gera má ráð fyrir að um 6-8 ný störf skapist hjá Lindex við nýju verslunina í Krossmóa.

Verslunin, sem staðsett er í aðalgangi verslunarmiðstöðvarinnar, mun bjóða allar þrjár meginvörulínur Lindex. Í fyrirtækinu starfa um 40 hönnuðir sem hafa verið í samstarfi við þekkta hönnuði á borð við Missoni og Jean Paul Gaultier auk þess sem stjörnurnar Gwyneth Paltrow, Penelope Cruz og Kate Hudson hafa unnið með fyrirtækinu við vorlínur undanfarinna ára.

„Þetta er frábært næsta skref fyrir okkur en við opnuðum Lindex í Smáralind árið 2011, í Kringlunni árið 2013 og á Glerártorgi 2014. Við teljum það vera einstaklega jákvætt að geta nú komið á Suðurnesin þar sem er mikill uppgangur og öflugt samfélag. Við erum þakklát fyrir hversu vel hefur tekist til með staðsetningu og hlökkum mikið til að bjóða okkar viðskiptavinum á Suðurnesjum upp á tískuupplifun á heimsmælikvarða“ segir Lóa D. Kristjánsdóttir, umboðsaðili Lindex á Íslandi

Lindex leggur mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð og virðingu fyrir því hvernig varan er framleidd þ.e. umhverfinu og manneskjunni sem framleiðir vöruna sem endurspeglast í stöðugt auknu framboði vara framleiddum úr lífrænni bómull. Fyrirtækið hefur einsett sér að 80% af framleiðslunni verði framleitt með sjálfbærum og umhverfisvænum hætti fyrir árið 2020. Í haust kynnti einnig Lindex möguleika til að endurnýta fatnað með því að skila til verslunarinnar og verða umbunað með inneign. Að auki má geta í þessu samhengi að Lindex á Íslandi hefur verið stór styrktaraðili Krabbameinsfélags Íslands og Unicef á Íslandi.

„Við erum mjög ánægðir með þennan samning og teljum að það felist í því mikil viðurkenning fyrir Krossmóa að Lindex velji það fyrir sína næstu verslun. Verslunarmiðstöðin Krossmói er afar vel staðsett og þar á verslun án vafa eftir að aukast enn frekar á komandi misserum”, segir Skúli Skúlason, frkv.stj. Urtusteins fasteignafélags.

Þess ber að geta að nýja verslunin verður byggð upp með nýrri innréttingahönnun Lindex sem leit dagsins ljós fyrst við opnun í London. Hönnunin byggir á björtu yfirbragði, ólíkum litbrigðum hvítra lita og svartra auk viðar sem gefur versluninni skandínavískt yfirbragð. Verslunin mun því veita viðskiptavinum innblástur og einstaklega hlýlegar móttökur sem á sér ekki hliðstæðu.

Verslunarmiðstöðin Krossmói var byggð árið 2008 og fjölþætt þjónusta er í húsinu sem hýsir m.a. verslun Nettó, Lyfju apótek og ÁTVR á Suðurnesjum. Húsið er um 10.000 m² og staðsett er í hjarta bæjarins.
Nokkrar lykilstaðreyndir um Lindex:
Lindex rekur nú 4 verslanir á Íslandi-í Smáralind, Kringlunni og Glerártorgi á Akureyri
Lindex býður upp á kventískufatnað, nærfatnað og barnafatnað
Lindex starfrækir um 500 verslanir í 16 löndum og verslanir á netinu í öllum ESB löndum
Hjá fyrirtækinu starfa um 5.000 manns-um 100 manns á Íslandi
Aðalskrifstofur Lindex eru í Gautaborg i Svíþjóð
Lindex tilheyrir Stockmann Group sem er aðili að finnsku kauphöllinni
Lindex á Íslandi styður baráttu UNICEF fyrir bættum hag barna í heiminum og Krabbameinsfélag Íslands Frekari upplýsingar má finna á www.lindex.com og á Facebook – Lindex Iceland

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 10 klukkutímum

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ná samkomulagi við Greenwood

Ná samkomulagi við Greenwood
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Vilhjálmur er með hugmynd um hvernig bjarga megi Akranesi en til þess þurfi hugrekki – „Við verðum að snúa vörn í sókn“

Vilhjálmur er með hugmynd um hvernig bjarga megi Akranesi en til þess þurfi hugrekki – „Við verðum að snúa vörn í sókn“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ronaldo versti sóknarmaður EM – Mjög óvænt nafn rataði á listann umdeilda

Ronaldo versti sóknarmaður EM – Mjög óvænt nafn rataði á listann umdeilda
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Svona lítur lið Evrópumótsins út

Svona lítur lið Evrópumótsins út
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Stórleikarinn kominn með nýja kærustu upp á arminn – Þremur árum eldri en dóttir hans

Stórleikarinn kominn með nýja kærustu upp á arminn – Þremur árum eldri en dóttir hans

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.