Eva Pandora Baldursdóttir hefur verið í fæðingarorlofi síðan hún var kjörin á þing í haust. Þótt hún njóti tímans með dótturinni er hún orðin spennt að taka sæti á þingi. Eva féllst á að gefa lesendum Akureyri Vikublaðs sínar uppáhaldsuppskriftir.„Maðurinn minn eldar oftast á heimilinu. Ég er ekki sérstaklega góður kokkur sem er frekar leiðinlegt þar sem mér finnst voðalega gaman að borða góðan mat. Það væri skemmtilegt að geta eldað hann sjálf,“ segir Eva Pandora Baldursdóttir á Sauðárkróki. [ref]http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/eva-pandora-var-olett-i-kosningabarattinni-eg-myndi-ekkert-endilega-maela-med-thessu[/ref]