Fyrirsætunni Ashley Graham var sagt að hún myndi aldrei sjást á forsíðu Vogue. Nú í fyrsta sinn á ferlinum hefur hún hlotið þennan eftirsótta heiður og er hún stórglæsileg á forsíðu marstölublaðs tímaritsins. Við vonum að sem flestir gagnrýnendur Ashley sjái þessa forsíðu, enda er frábært að hún hafi afsannað að kona í sinni yrði aldrei valin fyrir forsíðu Vogue. Með Ashley á forsíðunni eru fyrirsæturnar Kendall Jenner, Gigi Hadid, Liu Wen, Imaan Hammam, Adwoa Aboah og Vittoria Ceretti. Á forsíðunni eru þær kallaðar óttalausu konurnar í tískunni.