„Markmiðið er að deyja með minningar, ekki drauma“ – þetta er yfirskriftin á heimasíðu sem opnaði í dag þar sem piparsveinninn Vilhjálmur Þór Gunnarsson er auglýstur í bak og fyrir. Titilmynd síðunnar er af stórhuga karlmanni sem stekkur út úr flugvél – væntanlega er það Villi sjálfur.
Villi á samkvæmt upplýsingum á síðunni 29 ára afmæli í dag – en vinir hans tóku upp á því að kynna hann og hjúskaparstöðu hans með þessum hætti – að gefa honum síðuna í afmælisgjöf.
Svona kynna þeir Villa:
Hann Vilhjálmur vinur okkar er af einhverjum óskiljanlegum ástæðum á lausu. Þessari síðu er ætlað að bæta úr því. Villi er ævintýragjarn og hefur mikin áhuga á jaðarsporti. Ef þig dreymir um að stunda fallhlífastökk í Noregi, brimbretti á Hawaii eða fjallaskíði á Grænlandi þá er Villi maðurinn fyrir þig. (Ef ekki, þá er hann með góða líftryggingu…) Það skemmir ekki fyrir að hann er vel menntaður og í góðri vinnu.
Hafðu samband við Vilhjálm strax í dag. Ef þú bíður með það þá verður einhver önnur á undan þér.
Hér komist þið á síðuna stúlkur.
Við á Bleikt sendum Villa hjartans afmæliskveðjur og vonum að hann finni ástina!