Fyrir óþreyjufulla aðdáendur RuPaul’s Drag Race þá er biðin fljótt á enda en níunda sería er væntanleg. Það er komið á hreint hvaða dragdrottningar taka þátt og þær eru: Aja, Alexis Michelle, Charlie Hides, Eureka, Farrah Moan, Jaymes Mansfield, Kimora Blac, Nina Bo’Nina Brown, Peppermint, Sasha Velour, Shea Couleé, Trinity Taylor, and Valentina.
Samkvæmt Entertainment Weekly mun þessi þáttaröð vera mest „djúsí“ hingað til og við ættum öll að undirbúa okkur undir „sjokkerandi opnunaratriði sem mun taka fólk úr kjálkalið og vera skráð í sögubækurnar.“ Hver er spennt!?
Ef þú vilt kynnast þessum guðdómlegu drottningum betur horfðu þá á myndbandið hér fyrir neðan.