Óléttumyndir hennar hátignar, Beyoncé, eru ennþá það umtalaðasta á netinu. Flestir eru í losti yfir fegurðinni… en nú eru farnar að heyrast raddir um að hún hafi mögulega ekki átt hugmyndina að sumum myndanna alveg sjálf.
Tónlistarkonan M.I.A. birti í gær glefsu úr tónlistarmyndbandi sem hún er með í vinnslu og verður frumsýnt mánudaginn 6. febrúar. Á myndunum sést hún liggja í blómahafi á bílpalli með bleika slæðu yfir höfðinu.
https://twitter.com/MIAuniverse/status/827216322228584449?ref_src=twsrc%5Etfw
Beyoncé birti sínar myndir daginn áður en M.I.A. gerði það – og samkvæmt Dailybear er bíllinn hluti af verki sem ljósmyndarinn, Awol Erizku, gerði fyrir tíu mánuðum síðan. TÍU MÁNUÐUM! Einhverjir velta þó fyrir sér hvort hafi komið á undan, hænan eða eggið!
Kannski er samt enginn stuldur á ferð – mögulega kom innblásturinn frá myndum Awol af bílnum en þær hafa verið opinberar í tíu mánuði. Þetta með slæðuna yfir höfðinu er þó ráðgáta!