Brotist var inn á heimili Nicki Minaj í Los Angeles. Innbrotsþjófarnir tóku skartgripi að verðmæti 20 milljón íslenskra króna ásamt því að valda miklum skemmdum á heimili hennar. Nicki var sem betur fer ekki heima þegar innbrotið átti sér stað. Samkvæmt Billboard átti innbrotið sér stað einhverntíman á milli 24.nóvember 2016 og janúar 2017.
Nicki Minaj
Samkvæmt TMZ þá var heimili stjörnunnar, sem er rúmlega 1000 fermetrar á stærð, í rúst. Mörg húsgögn voru á hvolfi og ýmsir persónulegir munir hennar höfðu verið eyðilagðir, eins og myndarammar, ilmvatnsflöskur og fötin hennar. Innbrotið er nú til rannsóknar hjá lögreglu en enginn er grunaður.