Beyoncé gaf aðdáendum sýnum smá brot af næstu línu frá merkinu Ivy Park í gær. Þar er mikið um flíkur í grænu, brúnu, bleiku og svo auðvitað svörtu. Ivy Park flíkurnar seldust ótrúlega vel á síðasta ári og fengu íþróttafötin ótrúlega flottar viðtökur. Ásamt Beyoncé eru í þessu myndbandi R&B stjarnan SZA, leikkonan Yara Shahidi, Selah Marley dóttir Lauren Hill, systurnar Chloe og Halle og fyrirsætan Sophie Koella.