Einn morguninn fann Ashly Deskins tvo meidda íkorna í garðinum sínum. Ashly og eiginmaður hennar drifu sig á dýraspítalann með þá en það var of seint, þeir dóu báðir. En atvikið var nóg til að kveikja áhuga Ashly á íkornum. Hún byrjaði að fylgjast með daglegu lífi íkornanna í garðinum þeirra. Hún er ljósmyndari og ákvað að tengja áhuga sinn á íkornum við atvinnu sína. Hún býr til pínkulítil partý og sviðsmyndir fyrir íkorna.
Þetta byrjaði fyrst með nokkrum leikmunum sem að lokum leiddi til þess að ég keypti gólfefni til að búa til enn betra myndefni. Með því að fylgjast með íkornunum þá get ég séð hvort þeim líður vel með að hoppa upp á eitthvað og finn út hvað er sniðugt að nota,
sagði hún við The Dodo.
Ég set venjulega upp sviðsmynd og það geta liðið margar klukkustundir þangað til einhverjir íkornar koma og skoða það.
Sjáðu á myndunum hér fyrir neðan íkornana mæta í Super Bowl partý, fá sér að borða úr matarvagni og meira að segja kjósa!
Þú getur fylgst með Ashly og íkornunum á Facebook og Instagram.