Þessi girnilega uppskrift kemur frá Helgu Gabríelu og birtist fyrst á vefnum hennar. Við á Bleikt erum að spá í að skella í holla og góða súkkulaðimús og gæða okkur á yfir Rauða sófanum í kvöld!
2 avókadó, afhýdd og steinhreinsuð
5 msk kókóduft
1 banani, vel þroskaðir
2 msk dökkt möndlusmjör
3 msk hlynsíróp
1 msk vanilluduft eða dropar
+ nokkrar sjávarsaltflögur
Settu allt í blandara og blandað vel saman þangað til áferðin er orðin silkimjúk. Settu músína í falleg glös og láttu standa í kæli um 1/2 klst áður en hún er borin fram. Skreyttu hana með jarðaberjum og möndlukurli.