„Við erum ótrúlega hamingjusöm og virkilega spennt. Þetta á eftir að verða ævintýri,“ sagði George Clooney í viðtali við Rencontres de Cinema en hann á von á tvíburum með Amal eiginkonu sinni. George segir að vinir og fjölskylda styðji þau mjög mikið og hlakka til að sjá þau takast á við þetta krefjandi hlutverk. Talið er að George og Amal eigi von á strák og stelpu en þau hafa ekkert tjáð opinberlega sig um kyn tvíburana.
George sagði að vinir sínir stríddu sér svolítið vegna þess að hann verði svo gamall pabbi. Leikarinn er 55 ára gamall en hann segir að flestir vinir hans eigi börn sem séu flutt að heiman í nám. Um föðurhlutverkið sagði hann: „Þetta á eftir að breyta miklu en þannig er bara lífið.“