Rihanna er að vinna að sinni eigin snyrtivörulínu sem væntanleg er í haust. Söngkonan sýndi varalit á nýrri Instagram síðu línunnar sem fékk nafnið Fenty Beauty. Rihanna hefur áður hannað undir merkinu Fenti þegar hún gaf út línu í samstarfi við Puma. Varaliturinn er hólógrafískur (holographic) og var greinilega notaður á tískusýningunni Fenti X Puma á dögunum.
https://www.instagram.com/p/BQqWENnAbw5/?taken-by=fentybeautycosmetics
Fenti Beauty verður selt í verslunum Sephora en ekki er vitað um aðra sölustaði. Við eigum alla ekki von á þessum vörum til Íslands strax þar sem við erum ekki á lista yfir þau lönd sem byrja að selja snyrtivörurnar í Haust.