Þessar einföldu möffins tekur innan við tuttugu mínútur að baka í ofninum og eru ótrúlega bragðgóðar.
Uppskrift:
- 2 egg
- 110 gr brætt smjör
- 2 þroskaðir bananar (stappaðir)
- 1 tsk vanilludropar
- 230 gr hveiti
- 180 gr sykur
- 1 tsk lyftiduft
- ¼ tsk matarsódi
- ¼ tsk salt
- 1 ½ tsk kanill
- 75 gr saxaðar brasilíu hnetur
Aðferð:
- Hitið ofninn 180°
- Blandið öllum þurrefnunum saman og setjið til hliðar.
- Hrærið eggjum, bræddu smjöri og stöppuðum banönum saman ásamt vanilludropum.
- Bætið þurrefnunum smátt og smátt saman við þar til vel blandað.
- Skiptið niður í um 12 muffinsform og bakið í um 15-18 mínútur.