fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024

Tökum afstöðu gegn ofbeldinu og látum jörðina hristast

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 16. febrúar 2017 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin árlega dansbylting UN Women verður haldin í fimmta skipti  á morgun, föstudaginn 17. febrúar.  Viðburðurinn Milljarður rís verður í Hörpu í hádeginu á vegum UN Women á Íslandi og í samstarfi við Sónar Reykjavík og Nova. Líkt og undanfarin ár heldur DJ Margeir dansgólfinu trylltu og hvetjum við alla okkar lesendur til þess að mæta. Í ár verður heiðruð minning Birnu Brjánsdóttur.

Ofbeldi gegn konum er vandamál um allan heim – tökum afstöðu gegn ofbeldinu, mætum og dönsum!  Fólk er hvatt til þess að nota almenningssamgöngur til að koma í Hörpu en einnig verður hægt að leggja frítt í bílakjallara Hörpu og meðan fjörið stendur yfir.

Milljarður rís er dansbylting sem haldin er víða um heim. Með samtakamætti lætur heimsbyggðin til sín taka. Yfir milljarður karla, kvenna og barna kemur saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem allir fá að njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi. Segir í tilkynningu frá UN Women:

„Í kjölfar hvarfs Birnu Brjánsdóttur, sem síðar fannst látin, hafa konur hér á landi stigið fram og lýst þeim veruleika sem þær búa við. Þeim ótta og óöryggi sem þær finna fyrir á götum úti og hvernig þær axla ábyrgð á mögulegu ofbeldi með því að forðast augnsamband, velja ákveðnar götur fram yfir aðrar, halda á lykli milli fingra sinna í annarri hendi og símanum í hinni með 112 á hraðvali er þær ferðast milli staða að kvöld- og næturlagi. Þessi veruleiki er þó ekki aðeins bundinn við Reykjavík. Ofbeldi eða ótti við að verða fyrir því er hluti af daglegu lífi kvenna víða um heim. Ofbeldið á sér stað hvenær sem er dagsins, á heimilum, á úti á götum, í almenningssamgöngum, á vinnustöðum og í kringum skóla svo dæmi séu nefnd.

UN Women vinnur að því að gera borgir öruggari fyrir konur og stúlkur víða um heim. Einföld leið til þess að draga úr ofbeldi er að lýsa upp dimmar götur. Í Nýju Delí hefur ljósastaurum verið komið í borginni, m.a. við strætó biðskýli og á almenningssalernum. í Mexíkóborg hafa sérstakir kvennastrætóar verið settir á laggirnar sem gera konum kleift að ferðast til og frá vinnu óáreittar. UN Women vinnur í samstarfi við borgaryfirvöld víða um heim að einföldum og ódýrum aðgerðum sem miða að því að uppræta og draga úr ofbeldi gegn konum og stúlkum á almenningssvæðum.“

Þetta er í fimmta sinn sem dansað verður fyrir þolendum kynbundins ofbeldis og sýna þeim samstöðu. Í ár verður dansað í Reykjavík, Akureyri, í Rifi Snæfellsnesi, Ísafirði, Seyðisfirði, Reykjanesbæ, Neskaupstað, Hvammstanga, Borgarnesi, Egilsstöðum og á Höfn í Hornafirði. Dj Margeir setur tóninn og óvæntir gestir sjá til þess að þakið rifni af Hörpu. Aðgangur er ókeypis!

UN Women hvetur alla til að taka þátt í að gera borgir öruggari fyrir konur og stelpur með því að senda sms-ið KONUR í 1900 (1000 krónur)

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 17 klukkutímum

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Veðbankar segja þetta líklegasta áfangastað Southgate eftir tíðindin í morgun

Veðbankar segja þetta líklegasta áfangastað Southgate eftir tíðindin í morgun
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hröð útbreiðsla Covid veldur Landspítalanum vandræðum

Hröð útbreiðsla Covid veldur Landspítalanum vandræðum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Arsenal á eftir einni af hetjum Spánar

Arsenal á eftir einni af hetjum Spánar

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.