Þetta er sjöunda árið í röð sem LOVE birtir slíkt jóladagatal og eykst áhorfið með hverju ári. Áætlað er að dagatalið í ár slái áhorfsmet ársins 2016, en 84 milljón áhorf voru það ár.Sem er kannski ekki skrýtið því hér má sjá margar af fallegustu konum og fyrirsætum samtímans fáklæddar í hinum ýmsu aðstæðum.
Jóladagatalið í ár ber heitið #Staystrong og hvetja þær konur til að fagna kynhneigð sinni.
Dagur 1 var sýnishorn af þeim fyrirsætum sem vænta má í dagatalinu.
Dagur 3 var fyrirsætan Emily Ratajkoswki útötuð í spaghetti og olíu.
Á meðal þeirra sem eru í næstu myndböndum eru systurnar Gigi og Bella Hadid, Winnie Harlow, Kendall Jenner, Jourdan Dunn og Karlie Kloss.