Karl Bjarni Guðmundsson, eða Kalli Bjarni eins og hann er jafnan kallaður, fyrrum Idol stjarna og kærasta hans, Anna Valgerður Larsen, eiga von á barni saman á nýju ári.
Anna Valgerður tilkynnti gleðitíðindin á Facebooksíðu sinni fyrr í dag og birti sónarmynd. Það er ljóst að það er spennandi ár framundan hjá parinu, sem er búið að vera saman í tvö ár.