Harry Bretaprins og Barack Obama fyrrverandi forseti Bandaríkjanna eru góðir vinir. Þeir héngu til dæmis saman á Invictus leikunum í Toronto fyrr á árinu og Obama sendi heillaóskir til Harry þegar hann tilkynnti trúlofun sína og Meghan Markle.
Í myndbandsstiklu frá BBC sjást þeir vinirnir saman, þar sem Harry undirbýr sig til að taka viðtal við Obama fyrir þáttinn Today Show sem sýndur verður á BBC Radio 4 þann 27. desember næstkomandi. Viðtalið var tekið upp á Invictus leikunum.
Obama heimsótti Harry í maí 2017 og þá var þessi mynd tekin af þeim.
Prince Harry hosted former US President @BarackObama at Kensington Palace today. pic.twitter.com/9SWfSRY4FH
— Kensington Palace (@KensingtonRoyal) May 27, 2017