Um er að ræða stórtónleika, kvöldverð og sýningu, að hætti Las Vegas. Uppselt var á sýninguna í ár, eins og í fyrra. „Strax eftir sýninguna í fyrra, fórum við yfir hvernig til tókst og ákváðum þá næstu,“ segir Geir. Með Geir í sýningunni var stórsveit frá Las Vegas, undir stjórn Don Randi og íslenskir söngvarar, bæði þekktir og aðrir, sem munu stíga sín fyrstu spor í sýningunni.
Þegar er búið að ákveða daga fyrir The Las Vegas Christmas Show á næsta ári og verða tónleikar 7., 8. og 9. desember 2018 í Gamla bíói.
Geir Ólafsson var í viðtali við DV í sumar þar sem hann sagði frá jólatónleikunum og brúðkaupi hans og Adriönu.