Rak-Su þakkaði áhorfendum og fjölskyldum sínum fyrir stuðninginn og fagnaði einn þjálfara keppninnar, Simon Cowell, þeim og kallaði þá stjörnur.
Þetta er fjórtánda sería þáttanna og fluttu keppendur lög sín á laugardag og úrslit voru síðan tillynnt í lokaþættinum í gær. Fjöldi sigurvegara og keppenda í þáttunum hafa náð vinsældum út fyrir heimalandið og má þar nefna One Direction og Olly Murs, sem kepptu en unnu ekki og Leona Lewis og Little Mix, sem stóðu uppi sem sigurvegarar.
Ágóðinn af nýju lagi þeirra sem frumflutt var á laugardag rennur til góðgerðarmála,Together For Short Lives og Shooting Star Chase, en bæði góðgerðarfélögin safna til styrktar barnaspítölum. Lagið er dúett og syngja Wyclef Jean og Naughty Boy með í laginu.
Cowell lofaði Grace Davies einnig í hástert og sagði hana: „gjörsamlega frábær, frábær listamaður.“
Keppendur sem kepptu til úrslita í ár fluttu fjölda frumsaminna laga í keppninni og markar það ákveðnar breytingar í keppninni.