fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025

Jólaþorpið í Hafnarfirði opnar í dag

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 1. desember 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jólaþorpið í Hafnarfirði opnar í fimmtánda sinn í kvöld kl. 18:00 með fjölbreyttri dagskrá á Thorsplani þegar ljósin verða tendruð á jólatrénu. Í ár er það enginn annar en Laddi, Þórhallur Sigurðsson, sem mun segja frá jólunum sínum sem ungur drengur í Hafnarfirði, tendra ljósin á jólatrénu og telja í nokkur jólalög. Lúðrasveit Hafnarfjarðar og karlakórinn Þrestir flytja jólalög og þá mun Jón Jónsson skemmta gestum þannig að það verður af nægu að taka fyrir alla fjölskylduna.

Á laugardag verður ekki minna við að vera en þá eru „Syngjandi jól“ í Hafnarborg sem fyllist af söng og hátíðaranda þegar fjölmargir kórar Hafnarfjarðar skipaðir söngfólki á öllum aldri koma saman. Klukkan 14:00 tekur Kvennakór Hafnarfjarðar lagið í jólaþorpinu og svo koma þau Jóhanna Guðrún og Davíð Sigurgeirsson og syngja og skemmta gestum klukkan 14.30.

Á sunnudaginn þenur svo Sveinn Sigurjónsson nikkuna klukkan 13:30 og Jólabjöllurnar syngja svo fallega jólatóna í framhaldi af því. Klukkan 14:30 stígur svo Jón Jósep Snæbjörnsson á sviðið og flytur úrval jóladægurlaga og svo veðrur blásið í jólaball með þeim Skoppu og Skrítlu og ballerínum úr Listdansskóla Hafnarfjarðar.

Þá verður Grýla á vappi um jólaþorpið, risavaxinn jólasveinn gantast í gestum og Bettína verður á ferðinni með hestvagninn sinn.

Jólaþorpið verður opið alla laugardaga og sunnudaga á aðventunni frá kl. 12-17 og til kl. 22 á Þorláksmessu. Gestir Jólaþorpsins í ár geta gengið á milli tuttugu fagurlega skreyttra jólahúsa sem eru orðin landsþekktur söluvettvangur fyrir ýmiskonar gjafavöru, handverk og hönnun sem tilvalið er að setja í jólapakkann ásamt gómsætum veitingum og vörum til að taka með heim á veisluborðið.

Nánari dagskrá helgarinnar:

Föstudagurinn 1. desember frá kl. 18:00 – 21:00

18:00 – 18:15 Lúðrasveit Hafnarfjarðar
18:15 – 18:30 Karlakórinn Þrestir
18:30 – 18:45 Laddi, Þórhallur Sigurðsson, tendrar ljósin á jólatrénu
18:45-21 Brot af því besta sem er á dagskrá í Bæjarbíó í desember

Jólasveinar bregða á leik með börnunum

Bettína verður á ferli á Strandgötunni með hestvagninn sinn frá kl. 18:00 – 21:00 og geta áhugasamir fengið jólarúnt um bæinn fyrir sanngjarnt verð.

Laugardagurinn 2. desember frá kl. 12:00 – 17:00

10:40-15:40 Syngjandi jól í Hafnarborg sem fyllist af söng og hátíðaranda þegar fjölmargir kórar Hafnarfjarðar skipaðir söngfólki á öllum aldri koma saman

14:00 Kvennakór Hafnarfjarðar
14:30 Jóhanna Guðrún og Davíð Sigurgeirsson
15:00 Risavaxinn jólasveinn ferðast um jólaþorpið og gantast í gestum

15:00 Ljósin á Cuxhaven-jólatrénu verða tendruð við Flensborgarhöfn. Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur jólalög, jólasveinar verða á ferðinni og fulltrúar vinabæjarfélagsins í Cuxhaven og þýski sendiherrann á Íslandi tendra jólaljósin.

Jólasveinar verða á vappi um bæinn frá kl. 14:00 – 15:00. Bettína verður á ferli á Strandgötunni með hestvagninn sinn frá kl. 13:00 – 17:00 og geta áhugasamir fengið jólarúnt um bæinn fyrir sanngjarnt verð. Kynnir er Felix Bergsson.

Sunnudagurinn 3. desember frá kl. 12:00 – 17:00

13:30 Sveinn Sigurjónsson með nikkuna
14:00 Jólabjöllurnar
14:30 Jónsi – Jón Jósep Snæbjörnsson flytur úrval jólalaga
15:00 – 16:00 Jólaball með Skoppu og Skrítlu og ballerínum úr Listdansskóla Hafnarfjarðar

Grýla verður á vappi um bæinn frá kl. 14-16. Bettína verður á ferli á Strandgötunni með hestvagninn sinn frá kl. 13-17 og geta áhugasamir fengið jólarúnt um bæinn fyrir sanngjarnt verð. Kynnir er Grýla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Í bréfi frá Isaac Newton spáði hann fyrir um heimsendi

Í bréfi frá Isaac Newton spáði hann fyrir um heimsendi
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Segir Jón Pétur Zimsen kasta steinum úr glerhúsi – Blokkaði fyrrum nemanda sinn á Facebook í aðdraganda kosninganna

Segir Jón Pétur Zimsen kasta steinum úr glerhúsi – Blokkaði fyrrum nemanda sinn á Facebook í aðdraganda kosninganna
Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Læknir segir að þessi 5 að því virðist meinlausu einkenni geti verið merki um krabbamein

Læknir segir að þessi 5 að því virðist meinlausu einkenni geti verið merki um krabbamein
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

England: Þrjú mjög óvænt úrslit í ensku úrvalsdeildinni – Arsenal tapaði gegn West Ham

England: Þrjú mjög óvænt úrslit í ensku úrvalsdeildinni – Arsenal tapaði gegn West Ham
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Sjáðu mjög laglegt mark Fernandes beint úr aukaspyrnu

Sjáðu mjög laglegt mark Fernandes beint úr aukaspyrnu
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Læknir segir að þetta myndi hann gera ef hann þyrfti að léttast

Læknir segir að þetta myndi hann gera ef hann þyrfti að léttast
EyjanFastir pennar
Fyrir 13 klukkutímum

Sigmundur Ernir skrifar: Pólitískasta þversögnin á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Pólitískasta þversögnin á Íslandi
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Dóttirin greindist með sama sjúkdóm og Selena Gomez: Hélt að lífið væri búið – ,,Ég var í rúminu í tæplega tvo mánuði“

Dóttirin greindist með sama sjúkdóm og Selena Gomez: Hélt að lífið væri búið – ,,Ég var í rúminu í tæplega tvo mánuði“