Við tökum stjörnumerkin fyrir eitt í einu og nú er það Ljónið (23. júlí – 22. ágúst).
Ljóninu er stjórnað af sólinni, miðju sólkerfis okkar. Það fær Ljónið til að finnast það vera miðja athyglinnar hvert sem það fer. Þetta gerir Ljónin mjög meðvituð um félagslega ímynd þeirra. Ljónin vilja að allir sem þau hitta kunni að meta þau og virða.
Ef þú vilt að samband þitt við Ljónið endist, aldrei móðga það. Ljónið mun gefa þér ástúð sína þangað til þú sýnir að þú ert ekki verðugur hennar. Þegar Ljónið finnur að þú ert óþakklátur og kannt ekki að meta það sem Ljónið gerir fyrir þig, þá mun það hætta að elska þig.