Name it gefur út einstaklega fallega bók sem heitir Hús Stellu frænku og er eftir Cecilie Eken. Bókina má nálgast frítt í verslunum Name It.
Emma og Kalli eiga að fara í pössun til Stellu frænku síðustu dagana fyrir jólin. Hún á heima úti í skógi, í stóru húsi sem er fullt af spennandi gripum alls staðar að úr heiminum. Börnin stíga inn í ævintýraheim þar sem ekkert er alveg eins og þau eiga að venjast. Hvaða erindi á litla músin sem er alltaf að skjóta upp kollinum? Og hvaða furðuvera er á sveimi inni í þéttri þokunni? Þora krakkarnir að fara til fundar við hana? Og hvernig geta þau fundið lykilinn mikilvæga, sem Stella frænka er alveg búin að gleyma hvar hún geymir? Ef lykillinn finnst ekki getur hún nefnilega ekki haldið alvöru jól í húsinu sínu. Hús Stellu frænku er bók til að lesa fyrir börnin og eiga notalega stund, slungna sprelli og töfrum.
Bókin skiptist í 25 kafla svo það er hægt að nota hana sem samverudagatal og njóta þess að lesa saman einn kafla (ein opna í bókinni) á hverjum degi fram að jólum í desember.
Þar sem kaflarnir eru 25 er náttúrulega frábært að eiga lokakaflann eftir á jóladag.
Þrisvar í desember kemur svo varningur sem er tengdur ævintýrinu í verslanir Name it og hægt er að fara og nálgast þann varning í verslunum Name it. Nánari upplýsingar er að finna í bókinni.