Tónleikaferðalagið ber heitið Reputation líkt og nýútkomin plata hennar. Þrír tónleikar eru fyrirhugaðir, 8. júní í Manchester, 15. júní í Dublin og 22. júní á Wembley í London.
Fyrsta lag plötunnar, Look What You Made Me Do, varð mest streymda lagið á 24 klukkustundum, eftir að textamyndband blaðsins náði 19 milljón áhorfum. Þegar opinbera myndbandið kom út náði það 43,2 milljón áhorfum á einum sólarhring.
Miðar fara í sölu þann 1. desember næstkomandi. En þeir sem skrá sig á heimasíðu Swift fá tækifæri til að versla í forsölu sem hefst 29. nóvember næstkomandi.
Miðar eru til sölu á Ticketmaster.