Sólrún Diego er gríðarlega vinsæl á samfélagsmiðlum fyrir hreingerningarráð hennar. Það lá því næst við að koma ráðunum góðu á bók og hún er orðin að veruleika.
Bókin heitir Heima og í henni er fjallað um heimilisþrif og hagnýs húsráð, fallegt uppflettirit fyrir öll heimili. Heima er gefin út af Fullt tungl, fyrirtæki Björns Braga Arnarssonar. Útgáfuboð var í gær á Hverfisbarnum og mætti fjölda góðra gesta, sem naut veitinga og nældi sér í eintök af bókinni góðu.