Í gær kom út myndband við lag Pink, Beautiful Trauma, þar sem hún leikur húsmóður frá sjötta áratugnum. Í hlutverki eiginmannsins er Channing Tatum og eru þau hjónin, Ginger og Fred Hart, þreytt og óhamingjusöm.
Myndbandið er litríkt og skemmtilegt og sýnir vel danshæfileika bæði Tatum og Pink.