fbpx
Föstudagur 28.febrúar 2025

Einstakur Múmínbolli seldur á góðgerðaruppboði

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 22. nóvember 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Múmínbollinn með Míu litlu hefur verið hluti af bolla úrvali Arabia síðan árið 2008 þegar bollinn kom út. Hann hefur verið mjög vinsæll meðal safnara og aðdáenda Múmínálfana og verið í framleiðslu í nærri tíu ár.

Áður en bollinn kom á markað voru nokkrar útgáfur búnar til í verksmiðju Arabia í Finnlandi.  Og á meðan á hönnun bollans stóð þá voru nokkrir litir prófaðir þar sem lokaútkoman sést ekki fyrr en búið er að hita bollann upp í ákveðið hitastig.

„Framleiðsla á hverjum Múmínbolla tekur eitt og hálft til tvö ár. Litatónarnir í keramikinu eru alltaf mismunandi eftir samblandi lita og tóna. Og lokahitun bollans á yfir 1200 gráðum celsíus hefur líka áhrif á lokalit bollans,“ segir Nora Haatainen framleiðslu- og markaðsstjóri Múmínvaranna.

„Litirnir fyrir hverja vöru eru alltaf prófaðir hver fyrir sig og stundum verða til nokkrar útgáfur af hverjum bolla í framleiðsluferlinu.“

Árið 2006 þegar bollinn var kominn í framleiðslu var ljósbleikur litur notaður í bakgrunni hans, eftir prófanir var dekkri liturinn endanlega valinn.

„Í þessum bolla skiptu litatónar og teikning máli. Dekkri og hlýrri litatónn var mun betra val fyrir ástfangna Míu. Liturinn var líka í stíl við aðra múmínbolla á þeim tíma.“

Sumar af prótótýpum Múmínbollana voru til sýnis á Múmínbolla sýningu Arabia árið 2014, Mugs with a story to tell – Moomin. Ljósbleika útgáfa bollans var ekki þar, en hann kom fram í dagsljósið núna í nóvember í Finland 100 partýi sem skipulagt var af Fiskars Group.

Á þeim viðburði var góðgerðaruppboð þar sem einstakar finnskar hönnunarvörur voru boðnar upp. Bollinn ljósbleiki var þar á meðal. Og það var fyrirtæki Tove og Lars Jansson, Moomin Characters Oy Ltd., sem stofnað var á sjötta áratugnum, sem keypti þennan einstaka bolla til að bæta við bollasafn fyrirtækisins. Allur ágóði uppboðsins rann til SOS Children´s Villages Finland.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Forseti La Liga sakar City um stórfelld svindl – Segir þá láta fyrirtæki taka á sig kostnað

Forseti La Liga sakar City um stórfelld svindl – Segir þá láta fyrirtæki taka á sig kostnað
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Liverpool skoðar það alvarlega að kaupa einn besta framherjann í deildinni

Liverpool skoðar það alvarlega að kaupa einn besta framherjann í deildinni
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Fékk vægan dóm fyrir að misnota stjúpdóttur sína

Fékk vægan dóm fyrir að misnota stjúpdóttur sína
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Ólafur ósáttur og sakar Viðskiptablaðið um lygar – „Sit ekki lengur þegjandi undir upplognum merkimiðum falsfréttamiðla“

Ólafur ósáttur og sakar Viðskiptablaðið um lygar – „Sit ekki lengur þegjandi undir upplognum merkimiðum falsfréttamiðla“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Einar harmar fjöldauppsagnir Trump á veðurfræðingum – „Vara við ferðum fellibylja og vakta Tsunami bylgjur“

Einar harmar fjöldauppsagnir Trump á veðurfræðingum – „Vara við ferðum fellibylja og vakta Tsunami bylgjur“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Lofuðu pabba hans orgíu á hóteli til að tryggja starfskraftana – Kústskaft upp í endaþarm

Lofuðu pabba hans orgíu á hóteli til að tryggja starfskraftana – Kústskaft upp í endaþarm

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.