Titill sýningarinnar er viðeigandi miðað við umhverfið: Ég er hestur.
„Ég ætla að hafa heitt kakó, kaffi og vöfflur. Það væri gaman að sjá sem flesta,“ segir Maggý. „Það eru allir velkomnir, verður mikið fjör. Gaman að koma og kíkja á glæsilega myndlistasýningu og fá sér heitt kakó í kuldanum.“
Allir eru velkomnir. Húsið opnar kl. 14 og er opið til kl. 18. Síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 19. nóvember.