Tískusýningin er jafnan gríðarlega stór og flottur viðburður og frægustu fyrirsætur hvers tíma ganga tískupallinn.
„Ég er svo fúl yfir að geta ekki farið með til Kína í ár,“ skrifar Hadid á Twitter. „Ég elska VS fjölskylduna mína og ég mun verða með öllum stelpunum mínum í anda. Get ekki beðið eftir að sjá þessa flottu sýningu og get ekki beðið eftir næsta ári.“
I’m so bummed I won’t be able to make it to China this year. Love my VS family, and will be with all my girls in spirit!! Can’t wait to tune in with everyone to see the beautiful show I know it will be, and already can’t wait for next year! 🙂 x
— Gigi Hadid (@GiGiHadid) November 16, 2017
Hadid hefur ekki gefið út ástæðu þess að hún er ekki með í ár, en heimildir herma að einhverjar af fyrirsætunum hafi ekki fengið vegabréfsáritanir til Kína.