Falleg hönnun og heimili hafa lengi verið hugðarefni Þórunnar, sem hefur lengi hrærst í þessum geira, hún var ein af þáttastjórnendum Innlit Útlit sem sýndur var á Skjá Einum við frábærar undirtektir og hún er eigandi og útgefandi Home Magazine. Þórunn hætti á Hús og Hýbýli árið 2012, en er nú komin aftur í hlutastarfi.
„Jólablaðið sem var að koma út er þriðja blaðið sem ég skrifa í að þessu sinni,“ segir Þórunn. „Ég er lausapenni eins og er, en aldrei að vita hvað gerist þegar Leah Mist fer á leikskóla á nýju ári.“