Ronaldo á einnig fjögurra mánaða gamla tvíbura, Mateo og Eva Maria, og á von á fjórða barinu með kærustunni Georgina Rodriquez.
„CR7 JUNIOR línan snýst um að hafa gaman og vera frjáls, vera hugmyndaríkur og sjálfsöruggur, segir Ronaldo í viðtali við People. „Buxurnar er sniðnar þannig að strákar munu ekki eiga í neinum erfiðleikum með að hlaupa um og vera aktívir, vera frjálsir og leika sér.“
„Þess vegna er einkennisorð línunnar PRESS PLAY. Ég tel að ungmenni samtímans séu að færa okkur framar á mörgum sviðum og mér fannst að ég gæti fagnað því með því að skapa gallabuxnalínu með syni mínum.“
Hann segir einnig að sonurinn sé byrjaður að sýna áhuga á tísku og fallegum fötum, að líta vel út og hafi sýnt mikinn áhuga á CR7 línu föður síns.