Síðan deilir venjulega myndum af dýrum og landslagi, en myndin sem vakti óhug fylgjenda hennar er af hendi ungabarns sem heldur fast um þumalfingur fullorðins. Það sem vekur óhug eru neglur barnsins. Um 35 manns hafa sett „like“ á myndina og fjöldi skrifað athugasemdir við hana, enginn hefur lýst því yfir að myndin sé sæt, flestir hafa hins vegar haft á orði að neglurnar, sem virðast bæði þjalaðar og lakkaðar, séu hættulegar svo ungu barni.