fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025

Dagur gegn einelti er í dag

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 8. nóvember 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagurinn 8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn einelti í samfélaginu. Í ár verður dagurinn haldinn hátíðlegur í sjöunda sinn og er sjónum nú beint sérstaklega að forvörnum gegn einelti í skólum.

Með deginum er hvatt til þess að allir leggi sitt framlag á vogarskálarnar til að stuðla að  gagnkvæmri virðingu, samkennd og jákvæðum samskiptum í skólum. Jákvæður skólabragur skiptir sköpum fyrir líðan og starfsgleði nemenda og starfsfólks og getur haft sömu áhrif og besta forvarnarstarf.

Neðangreind dæmisaga er einföld, en segir samt svo vel hvaða áhrif einelti hefur í för með sér. Verum góð við hvert annað.

Prófaðu að krumpa blað eins mikið og þú getur án þess að rífa það og slétta svo alveg úr því. Það er ekki hægt að slétta alveg úr því. Þú getur prófað eins mikið og þú getur að biðjast afsökunar eða bæta úr því en örin eru til að vera og eru ekki á förum.
Ef þú leggur einhvern í einelti ertu að gera það sama við sál manneskjunnar og þú gerðir við blaðið.
Ekki er hægt að laga eða taka til baka það sem er orðið krumpað!

Heimasíða: Gegn einelti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Viðurkennir að allt sé í rugli hjá Manchester United – ,,Staðan er mjög, mjög slæm“

Viðurkennir að allt sé í rugli hjá Manchester United – ,,Staðan er mjög, mjög slæm“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Kom mörgum á óvart og ákvað að gerast klámstjarna: Móðir hans var steinhissa – ,,Hún fór að gráta“

Kom mörgum á óvart og ákvað að gerast klámstjarna: Móðir hans var steinhissa – ,,Hún fór að gráta“
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

Væb róa í Eurovision eftir glæsilegan sigur í Söngvakeppninni

Væb róa í Eurovision eftir glæsilegan sigur í Söngvakeppninni
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Duran missti hausinn og Ronaldo nánast ósýnilegur

Duran missti hausinn og Ronaldo nánast ósýnilegur
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Segir Jón Pétur Zimsen kasta steinum úr glerhúsi – Blokkaði fyrrum nemanda sinn á Facebook í aðdraganda kosninganna

Segir Jón Pétur Zimsen kasta steinum úr glerhúsi – Blokkaði fyrrum nemanda sinn á Facebook í aðdraganda kosninganna
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Hákon fagnaði að hætti Ronaldo – Sjáðu myndbandið

Hákon fagnaði að hætti Ronaldo – Sjáðu myndbandið