Við tökum stjörnumerkin fyrir eitt í einu og nú er það Krabbi (21. júní – 22. júlí).
Einstaklingar í Krabbamerkinu stjórnast af Tunglinu sem gerir þá mjög miskunnsama og tilfinningaríka einstaklinga sem njóta félagsskapar fólks og kunna að meta öll samskipti sem þeir eiga í lífi sínu.
Krabbinn leitar að tilfinningalegu öryggi hjá maka sínum. Ef Krabbinn elskar og treystir þér þá mun hann gera allt fyrir þig. En þetta þýðir samt ekki að hann vilji ekki eiga tíma fyrir sjálfan sig. Krabbinn nýtur þess að eiga tíma með sjálfum sér, en hann nýtur þess enn meira að verja tíma með þeim sem hann elskar.
Þannig að, ef þú vilt að samband þitt við Krabbann endist, vertu þá viss um að honum finnist hann öruggur og elskaður. Ef hann finnur að þú ert að fjarlægjast hann eða að þú elskar hann ekki eins heitt og þú gerðir, þá mun hann fara í burtu til að vernda hjarta sitt.