fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025

Eliza stóð vaktina í Smáralind

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 3. nóvember 2017 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sala á Neyðarkallinum 2017 hófst formlega í gær kl. 16 í Smáralind þar sem Eliza Jean Reid forsetafrú stóð vaktina ásamt björgunarsveitafólki af höfuðborgarsvæðinu og seldi Neyðarkall, á meðan Guðni Th. forseti Íslands fundaði á Bessastöðum vegna stjórnarmyndunar.

 

Næstu daga munu sjálfboðaliðar frá björgunarsveitum víðsvegar um land selja Neyðarkall og afla þannig fjár til reksturs björgunarstarfs. Hagnaður af sölunni rennur beint til björgunarsveitanna og verður hann notaður til að efla búnað og styrkja þjálfun björgunarsveitarmanna landsins.

 

Eliza Reid forsetafrú, ásamt Erlu Björk frá Hjálparsveit skáta Kópavogi.

„Við vonum að landsmenn taki meðlimum björgunarsveitanna opnum örmum og styðji þannig við bakið á fórnfúsu starfi þeirra þúsunda björgunarsveitarmanna sem eru til taks allan ársins hring þegar samborgarar þeirra þurfa á aðstoð að halda,“ segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Gervigreindin um ræður Áslaugar Örnu og Guðrúnar Hafsteins: Áslaug Arna höfðar til innvígðra – Guðrún höfðar til breiðari hóps kjósenda

Gervigreindin um ræður Áslaugar Örnu og Guðrúnar Hafsteins: Áslaug Arna höfðar til innvígðra – Guðrún höfðar til breiðari hóps kjósenda
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Eru ofnskúffurnar skítugar? Svona er hægt að fá þær skínandi hreinar á einfaldan hátt

Eru ofnskúffurnar skítugar? Svona er hægt að fá þær skínandi hreinar á einfaldan hátt
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Viðurkennir að allt sé í rugli hjá Manchester United – ,,Staðan er mjög, mjög slæm“

Viðurkennir að allt sé í rugli hjá Manchester United – ,,Staðan er mjög, mjög slæm“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Kom mörgum á óvart og ákvað að gerast klámstjarna: Móðir hans var steinhissa – ,,Hún fór að gráta“

Kom mörgum á óvart og ákvað að gerast klámstjarna: Móðir hans var steinhissa – ,,Hún fór að gráta“
Fókus
Fyrir 20 klukkutímum

Væb róa í Eurovision eftir glæsilegan sigur í Söngvakeppninni

Væb róa í Eurovision eftir glæsilegan sigur í Söngvakeppninni
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Duran missti hausinn og Ronaldo nánast ósýnilegur

Duran missti hausinn og Ronaldo nánast ósýnilegur

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.