Hægt er að kaupa bleika bandið, eyrnalokka eða bleika tvennu sem samanstendur af tveimur armböndum úr kristal og rosequartz.
Bleika bandið er úr kristal, náttúrusteinunum feldspar og rosequartz og nikkelfríum málmi.
Lokkarnir og bleika tvennan eru úr sama efni nema ekki með náttúrusteininum feldspar.
Armböndin eru til í 5 stærðum frá x-small til large+. Medium er um 19 cm að lengd og það munar um 0,8 cm á milli stærða.
Bleika bandið kostar 3.850 kr. stk., 700 kr. renna til Ljóssins.
Bleika tvennan kostar 5.450 kr. parið, 700 kr. renna til Ljóssins.
Bleiku lokkarnir kosta 2.850 kr. parið, 500 kr. renna til Ljóssins.
Hægt er að kaupa armböndin í Ljósinu Langholtsvegi eða á Tobba Design á Facebook.