Nýjasta myndband Taylor Swift kom út í gær. Myndbandið er við lagið …Ready for it? sem er annað lag plötunnar Reputation sem kemur út 10. nóvember næstkomandi.
Myndbandið, sem Joseh Kahn gerir, er í anda fyrri myndbanda Swift: gullmoli fyrir augun og stútfullt af alls konar leyndum tilvísunum og skilaboðum.