fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025

Silja skrifar sögu Sveins – útgáfuboð

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 25. október 2017 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ingunn Ásdísardóttir og Silja Aðalsteinsdóttir.

Jólabókaflóðið er byrjað að rúlla og ein af mæðrum íslenskra bókmennta í dag, Silja Aðalsteinsdóttir skráir sögu Sveins R. Eyjólfsson blaðaútgefanda, Allt kann sá er bíða kann.

Útgáfuboðið fór fram í Norræna húsinu í gær og mætti fjöldi góðra gesta til að fagna með Silju og næla sér í eintak.

Kampakátir saman: Sigurður G. Guðjónsson og Bubbi Morthens.
Guðrún Ágústsdóttir, Hugrún Jóhannesdóttir og Ágústa Jóhannsdóttir.
Ellert B. Schram, Hugrún Jóhannesdóttir, Styrmir Gunnarsson og Ágústa Jóhannsdóttir.
Jón Steinar Gunnlaugsson, Svavar Gestsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Siv Friðleifsdóttir, Friðleifur Stefánsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Einar Kárason og Egill Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Forlagsins.
Hólmfríður Matthíasdóttir útgefandi Forlagsins og Auður Jónsdóttir.
Anna Júlíana, Ingunn Benediktsdóttir, Hólmfríður K. Gunnarsdóttir og Þóra Hallgrímsson.
Gunnhildur Gunnarsdóttir, Magnús Gunnarsson og Jón Atli Kristjánsson.

Sveinn R. Eyjólfsson kemst Íslendinga næst því að vera „dagblaðamógúll“. Hann reisti Vísi úr rústum, stofnaði Dagblaðið þegar þeir Jónas Kristjánsson yfirgáfu Vísi með hvelli og gerði það að stórveldi, síðan DV, netmiðilinn Visir.is og Fréttablaðið. Sveinn er maðurinn sem bæði sameinaði málgögn félagshyggjuaflanna og bar ábyrgð á Eimreiðarklíkunni, og lengst af átti hann meirihlutann í Frjálsri fjölmiðlun sem var þá eitt helsta fjölmiðlaveldi landsins. Þrátt fyrir þetta hefur hann sjálfur verið huldumaður, sjaldan veitt viðtöl eða sést á myndasíðum glansblaðanna.

Allt kann sá er bíða kann rekur viðburðaríka ævisögu Sveins, allt frá erfiðum æskuárum til glæsilegs ferils í íslensku viðskiptalífi. Sveinn er sjálfstæðismaður af hugsjón en var þó flokknum óþægur með því að berjast gegn stórfyrirtækjum sem voru í náðinni enda er öll einokun eitur í hans beinum. Umskipti urðu í lífi hans þegar Frjáls fjölmiðlun varð gjaldþrota árið 2002. Þá tóku við ár úrvinnslu sem einnig sýndu hvert efni er í manninum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Sótti um skilnað eftir að eiginmaðurinn baulaði á Taylor Swift – „Segir mér allt sem ég þarf að vita um þennan mann“

Sótti um skilnað eftir að eiginmaðurinn baulaði á Taylor Swift – „Segir mér allt sem ég þarf að vita um þennan mann“
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum
Hvað er konudagur?
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

England: Liverpool með 11 stiga forskot á toppnum

England: Liverpool með 11 stiga forskot á toppnum
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Young birti athyglisverða X færslu – Vitnaði í fræg ummæli Mourinho

Young birti athyglisverða X færslu – Vitnaði í fræg ummæli Mourinho
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Hvað gerist í líkamanum ef þú drekkur orkudrykk?

Hvað gerist í líkamanum ef þú drekkur orkudrykk?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Salah kveikir í City mönnum fyrir stórleikinn: Segir að Haaland lifi auðveldu lífi – ,,Þægilegt fyrir hann“

Salah kveikir í City mönnum fyrir stórleikinn: Segir að Haaland lifi auðveldu lífi – ,,Þægilegt fyrir hann“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Allt vitlaust eftir að hann lét þessi ummæli flakka í vikunni – ,,Ég ætlaði ekki að móðga neinn“

Allt vitlaust eftir að hann lét þessi ummæli flakka í vikunni – ,,Ég ætlaði ekki að móðga neinn“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.