Í dag leiðir Birna Þórðardóttir göngu um Vesturbæinn, Kvosina og Þingholtin, þar sem hún segir frá konum sem hafa markað spor sín á borgina. Að lokinni göngu er boðið upp á kaffi og kökur á Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum og Lay Low spilar lög við ljóð eftir íslenskar konur.
Gangan leggur af stað frá Hallveigarstöðum kl. 17:00 og tekur tæpan klukkutíma.
Ókeypis aðgangur og allir eru velkomnir.