Skóhönnuðurinn Marta Jónsson býður á hverju ári vinum og viðskiptavinum í partý í verslun sinni á Laugavegi 51. Vinur hennar, Hafliði Ragnarsson, konfektgerðarmeistari, sá að vanda um veitingar, sem voru jafn ljúffengar og þær voru girnilegar á að líta.
Fjöldi fallegra kvenna mætti til Mörtu til að sjá nýjustu skóna, gæða sér á ljúffengum veitingum og spjalla, enda fátt skemmtilegra en að hitta góða vini.