Þeir verða aldrei jafnhvítir aftur, alveg sama hvaða húsráð við höfum reynt.
Twitternotandinn @sarahtraceyy virðist hins vegar hafa fundið ráð sem virkar og deildi hún fyrir og eftir mynd af hvítu Converse skónum sínum ásamt húsráðinu sem hún notaði.
Twitternotendur hafa tekið vel í póstinn og hafa yfir 9000 líkað við póstinn og yfir 1300 deilt honum áfram.
I am a miracle worker pic.twitter.com/BeivqBtdrv
— halloween queen (@sarahtraceyy) October 15, 2017
Og eftir að fjöldi notenda bað um, þá deildi Sarah að sjálfsögðu hvernig hún fór að:
Hreinsa skóna, blanda matarsóda og þvottaefni saman 1 á móti 1.5, bursta með tannbursta, láta bíða.
Hreinsa skóna aftur og setja í þvottavélina og setja síðan barnapúður á þá og þurrka.