Tónlistarmennirnir Lay Low og Pétur Ben komu í fyrsta sinn fram saman á Menningarhátíð Seltjarnarness um síðustu helgi.
Dagskrá kvöldsins sniðu þau sérstaklega fyrir hátíðina, en í henni tvinnuðu þau tónlist sína saman til að skapa einstaka upplifun. Vel var mætt á tónleikana og létu gestir vel af.