Nú er hrekkjavakan á næsta leiti og margir farnir að undirbúa hrekkjavökupartý og búninga.
Því er tilvalið að skoða nokkrar sprenghlægilegar myndir af fólki sem heimsótti draugahús sem heitir Nightmares Fear Factory og er staðsett í Kanada. Falin myndavél var sett upp í húsinu og náði hún myndum af fólki einmitt á því augnabliki sem hræðslan var sem mest.
Hægt er að skoða fleiri myndir inn á heimasíðu Nightmares Fear Factory.