Veitingahúsið Sæta svínið er einn af fjölmörgum aðilum sem styrkir Bleiku slaufuna í október mánuði.
Gestir og gangandi geta nú fest kaup á svínslega sætri bleikri húfu sem kostar aðeins 2.000 kr. og rennur sú fjárhæð óskipt til Bleiku slaufu Krabbameinsfélagsins.
Sæta svínið er á Hafnarstræti 1-3, 101 Reykjavík.