Við hvetjum fyrirtæki til að taka þátt í Bleika deginum og kynna sér nýtt fræðsluefni um krabbamein á vinnustöðum. Þar er að finna haldgóðar og aðgengilegar upplýsingar um hvernig hægt er að styðja vinnufélaga sem greinst hefur með krabbamein. Með því að hafa samband við krabbameinsfélagið á krabb@krabb.is er hægt að fá sent veggspjald sem tilvalið er að hafa uppi til dæmis á kaffistofu vinnustaðarins.
Krabbameinsfélagið þakkar öllum sem stutt hafa starf félagsins með kaupum á Bleiku slaufunni og hvetur þá sem vilja tryggja sér slaufu að festa kaup á henni þar sem hún fæst. Sölustaði um allt land má finna á Bleikaslaufan en þeir eru meðal annars apótek, matvöruverslanir, bensínstöðvar, byggingavöruverslanir, Pósturinn, kaffihús og ritfangaverslanir.